Darri EA 32

1231. Darri EA 32 ex Þorkell Árnason GK 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007.

Darri EA 32 liggur hér við bryggju á Dalvík um árið en þaðan var hann gerður út um tíma árin 2007-2008.

Báturinn var smíðaður í Dráttarbrautinni hf. í Neskaupstað 1972 fyrir Hafölduna h/f á Eskifirði. Báturinn hét Hafalda SU 155 og var 65 brl. að stærð.

Árið 1974 var hann seldur suður í Garð og fékk hann þá nafnið Þorkell Árnason GK 21. Eigendur vorur Þórhallur og Ægir Frímannssynir, síðar Þorkell Árnason ehf. 

Eitthvað var bátnum breytt í gegnum tíðina, yfirbyggður 1991 og þá væntanlega skipt um brú um leið. Þá var skipt um aðalvél 1984.

Árið 2007 var hann seldur til Dalvíkur þar sem hann hét um tíma Darri EA 32 og var gerður út af Dalorku ehf. á Dalvík. 

Í ársbyrjun 2008 var báturinn kominn aftur í Garðinn þar sem hann fékk hann nafnið Ásta GK 262 og var í eigu Hafkletta ehf. en árið 2012 er Nesfiskur hf. skráður útgerðaraðili.

Ásta GK 262 fór í núllflokk á Fiskistofu 1. september 2014.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd