
Trausti EA 98 frá Akureyri kemur hér til hafnar á Siglufirði sumarið 2012 en hann var þá gerður út til strandveiða.
Báturinn sem, er 8 brl. að stærð, hét upphaflega Eyrún EA 58 var smíðaður 1954 fyrir Hríseyinga í skipasmíðastöð KEA.
1973 var báturinn seldur til Ólafsfjarðar þar sem hann fékk nafnið Sigurður Pálsson ÓF 66.
Árið 2005 var báturinn tekinn af skrá en eftir að Lúðvík Gunnlaugsson á Akureyri keypti hann árið 2009 og hóf að endurbyggja komst hann aftur á skipaskrá árið 2010 undir nafninu Trausti EA 98. Báturinn hefur staðið undanfarin ár staðið upp á landi í Sandgerðisbót á Akureyri.
Heimild: aba.is
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution