
Fanney SK 83 lætur hér úr höfn á Húsavík á vormánuðum árið 2003 en hún stundaði þá dragnótaveiðar.
Báturinn hét upphaflega Jón Jónsson SH 187 frá Ólafsvík og var smíðaður í Skipasmíðastöð KEA á Akureyri 1959.
Árið 1975 var hann seldur á Blönduós þar sem hann fékk nafnið Guðmundur Einarsson HU 100. Sama ár seldur til Dalvíkur og varð Dalborg EA 317. Til Reykjavíkur fór hann 19977 og nafnið sem hann bar þar var Valur RE 7.
Aftur fór hann til Dalvíkur, það var árið 1981 og fékk nafnið Merkúr EA 24. Ári síðar var hann seldur aftur til Reykjavíkur þar sem hann fékk nafnið Jóhanna Magnúsdóttir RE 70.
Báturinn var seldur til Grundarfjarðar árið 1983 og fékk nafnið Sóley SH 150.
Í Grundarfirði var Sóley til ársins 1995 en þá var hún seld til Hornafjarðar þar sem hún fékk nafnið Hrafnsey SF 8.
Haustið 2002 fær báturinn nafnið Fanney SK 83 með heimahöfn á Sauðárkróki en ári síðar breytist það í HU 83 og heimahöfn verður Hvammstangi.
Það var svo árið 2010 sem báturinn fékk sitt síðasta nafn sem var Lára Magg ÍS 86.
Báturinn var rifinn í Njarðvík árið 2015 en hann hafði þá legið lengi í höfninni þar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution