
Jón Steinar sendi drónann sinn um sjö kílómetra á haf út í dag til að mynda Beiti NK 123 þar sem hann sigldi fulla ferð í gegnum Reykjanesröstina áleiðis á síladarmiðin fyrir vestan land.
Skipið, sem áður hét Gitte Henning S 349, var smíðað í skipasmíðastöðinni Western Baltija Shipbuilding í Litháen en kom nýtt til Danmerkur í apríl 2014.
Beitir NK 123 er 86,3 metrar að lengd, 17,6 metrar að breidd og mælist 4.138 brúttótonn að stærð.
Síldarvinnslan keypti skipið til landsins síðla árs 2015 og gaf því nafnið Beitir NK 123.





Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution