
Hraunsvík GK 68 kemur hér að landi í Grindavík um árið en hún hét upphaflega Akurey SF 52 og var smíðuð í Danmörku 1956.
Akurey hét eftirfarandi nöfnum: Akurey SF 52 til 1962. Rán SU 58 til 1967. Gissur ÁR 6 til 1970 og síðan Hraunsvík GK 68 til loka en Samherji keypti bátinn árið 1988.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.