
Hrannar HF 346 var smíðaður í Esbjerg í Danmörku árið 1978 og mældist það 272 brl. að stærð.
Togarinn var keyptur frá Grænlandi síðla árs 1993 af Kögurfelli ehf. á Ísafirði og fékk nafnið Hafrafell ÍS 222.
Hafrafell var selt árið 1997 en það var þá í eigu Básafells hf. og fékk nafnið Hrannar HF 346 og var í eigu Hraunsvíkur ehf. í Hafnarfirði.
Árið 1999 kaupir Andromeda ehf. á Fáskrúðsfirði skipið og gefur því nafnið Sveinn Rafn SU 50.
Síðar í eigu LBI ehf. og Svan-Fishing ehf. en fer í núllflokk hjá Fiskistofu 1. september 2004 og seldur úr landi sama ár.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution