
Páll Jónsson GK 7 landaði í Grindavík í gærmorgun tæpum 100 tonnum, uppistaða þorskur og ýsa sem fékkst á Austfjarðarmiðum.
Skipið hélt út frá Grindavík að löndun lokinni áleiðis til Hafnarfjarðar þar sem það mun liggja meðan áhöfnin, ásamt öðru starfsfólki Síldarvinnslusamstæðunnar, fer til Póllands í árshátíðarferð.





Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.