
Vísir RE 39 sést hér á landleið til Þorlákshafnar vorið 1982 en Hreiðar Olgeirsson skipstjóri á Kristbjörgu ÞH 44 tók myndina.
Vísir var seldur til Þorlákshafnar þetta ár og fékk nafnið Skálafell ÁR 16.
Á vefnum aba.is, segir svo um bátinn:
Cæsar átti eftir að koma víða við næstu árin og heita hinum ýmsu nöfnum. Frá árinu 1943 hét báturinn Sæbjörn SH-91, Grundarfirði. Frá árinu 1946 hét hann Sæbjörn RE-91, Reykjavík. Frá árinu 1949 hét hann Sæbjörn SU-44, Fáskrúðsfirði.
Frá árinu 1955 hét hann Sæbjörn NK-22, Neskaupstað. Frá árinu 1957 hét hann Vísir NK-22, Neskaupstað. Frá árinu 1961 hét hann Vísir SU-256, Fáskrúðsfirði. Frá árinu 1965 hét hann Vísir SK-56, Sauðárkróki. Frá árinu 1970 hét hann Vísir RE-95, Reykjavík. Frá árinu 1971 hét hann Vísir ÍS-260, Ísafirði.
Frá árinu 1971 hét hann Árni Magnússon ÍS-260, Ísafirði. Frá árinu 1978 hét hann Vísir RE-39, Reykjavík. Frá árinu 1982 hét hann Skálafell ÁR-16, Þorlákshöfn og Eyrarbakka. Frá árinu 1985 hét hann Snör ÁR-16, Þorlákshöfn. Frá árinu 1988 hét hann Hafbjörg ÁR-16, Þorlákshöfn.
Frá árinu 1989 hét hann Hafbjörg VE-115, Vestmannaeyjum. Frá árinu 1990 hét hann Hafbjörg VE-815 og það nafn bar báturinn þegar honum var fargað og hann felldur af skipaskrá 9. júlí 1991
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution