Njáll RE 275

1575. Njáll RE 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Njáll RE 275 kemur hér að landi í Keflavík um árið en hann var smíðaður í Bátalóni hf.í Hafnarfirði árið 1980.

Hann var með smíðanúmer 460 frá stöðinni og smíðaður fyrir Sjóla hf. í Reykjavík.

Báturinn var 24 brl. að stærð, lengd hans var 14,90 metrar og breiddin 3,80 metrar.

Njáll hefur gengið í gegnum ýmsar breytingar í gegnum árin og mælist nú 19,95 metrar að lengd og breidd hans er 5 metrar. Stærð hans er 43 brl./43 BT.

Árið 2018 keypti Fiskkaup hf. Sjóla ehf. og í framhaldinu var Njáli lagt og hann síðar seldur.

Árið 2019 fékk hann einkennisstafina ÓF 275 með heimahöfn á Ólafsfirði.

Árið 2020 bar Njáll einkennisstafina HU 275 og síðar GK 63 en frá vorinu 2021 hefur báturinn borið nafnið Silfurborg SU 22.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd