
Hér kemur mynd af Bárði SH 81 koma til hafnar á Húsavík fyrir rúmum mánuði síðan.
Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. og fór smíði bátsins fram í Bredgaard bátasmiðjunni í Rødby í Danmörku. Bárður kom til landsins í nóvembermánuði 2019.
Bárður SH 81, sem er með heimahöfn í Ólafsvík, er 26,90 metra langur og 7 metra breiður og mælist 153 brúttótonn að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution