Bárður SH 81

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

Dragnótabáturinn Bárður SH 81 frá Ólafsvík kemur hér til hafnar á Húsavík síðdegis í dag eftir veiðar á Skjálfanda.

Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. og fór smíði bátsins fram í Bredgaard bátasmiðjunni í Rødby í Danmörku. Bárður kom til landsins í nóvembermánuði 2019.

Bárður SH 81 er 26,90 metra langur og 7 metra breiður og mælist 153 brúttótonn að stærð. 

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd