Tómas Þorvaldsson GK 10

2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex  ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 kom til löndunar í Grindavík í vikunni og tók Jón Steinar þessar myndir þá.

Grindavík Seafod ehf sem er eitt af þremur fyrirtækjum sem varð til þegar Þorbirni hf í Grindavík var skipt upp eignast skipið í desember 2024 og gerir það út í dag.

Þetta var síðasta veiðiferð kvótaársins og aflinn var 21076 kassar sem gerir 726 tonn upp úr sjó og verðmæti upp á 480 milljónir.

Skipstjóri í þessari veiðiferð, sem tók 23 daga, var Bergþór Gunnlaugsson.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd