Hafdís SK 4

2462. Hafdís SK 4 ex Gunnar Bjarnason SH 122. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

Dragnótabáturinn Hafdís SK 4 frá Sauðárkróki kom til Húsavíkur síðdegis í dag en það er Fisk Seafood ehf. sem gerir hann út.

Hafdís SK 4 hét áður Gunnar Bjarnason SH 122 frá Ólafsvík og var báturinn smíðaður í Kína árið 2001.

Upphaflega bar hann nafnið Rúna RE 150 en í janúar árið 2005 fær hann nafnið Ósk KE 5 og um mitt ár 2006 fær hann nafnið Gunnar Bjarnason SH 122.

Báturinn var skutlengdur um 2,5 metra í Skipavík í Stykkishólmi og mælist hann nú 100 brl./ 122 BT að stærð.

Það var svo í byrjun febrúar á þessu ári sem báturinn fékk nafnið Hafdís SK 4 og leysti hann af annan minni sem bar sama nafn. Sá var seldur á Drangsnes þar sem hann fékk nafnið Grímsey ST 2.

Hafdís SK 4 fór í slipp í Njarðvík þar sem unnið var að töluverðum endurbótum og þ.a.m skipt um aðalvél.

Báturinn hóf síðan veiðar í júní.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd