Ingólfur GK 125

824. Ingólfur GK 125 ex Bergþór KE 5. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Ingólfur GK 125, sem hér kemur að landi í Grindavík um árið, var smíðaður í Frederikssund í Danmörku árið 1931.

Báturinn, sem er 22 brl. að stærð, hét upphaflega Huginn GK 341 og var smíðaður fyrir Útgerðarfélag Vatnsleysustrandar í Vogum.

Hann bar nokkur nöfn í gegnum tíðina sem og marga einkennisstafi og númer svo sem Jón Dan GK 431, Farsæll SH 30, Sæborg GK 86, BA 86, RE 328, SH 128, RE 325 og KE 102. Bergþór KE 5, Ingólfur GK 125, Fengsæll GK 262 og loks Fengsæll ÍS 8.  Heimild: Íslensk skip.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd