Emma VE 219

1664. Emma VE 219. Ljósmynd Hörður Harðarson.

Emma VE 219, smíðuð í Póllandi fyrir samnefnt fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Nánar tiltekið hjá Tczew Yard í Tczew í Póllandi árið 1988.

Emma var 82 brl. að stærð en eftir lengingu um 5,5 metra árið 1999 mældist hún 114 brl. að stærð.

Árið 2000 keypti Bergur-Huginn hf. Emmuna og fékk hún nafnið Háey VE 244. Háey var seld Dala-Rafni hf. árið 2004 og fékk hún nafnið Dala-Rafn VE 508. 

Stígandi ehf. keypti Dala-Rafn VE árið 2008 og fékk hann nafnið Stígandi VE 77. 

Árið 2013 keypti Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum Stíganda ehf. en í ársbyrjun 2016 var Stígandi VE 77 seldur til Suðurnesja. Kaupandinn, Marbrá ehf, nefndi bátinn Marberg GK 717 með heimahöfn í Sandgerði.

Ekkert varð af útgerð Marbergsins og vorið 2016 keypti Tjaldtangi ehf. á Ísafirði bátinn sem við það fékk nafnið Guðbjörg Sigurðardóttir ÍS 508.

Árið 2019 var báturinn seldur úr landi.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd