
Vigfús Markússon tók þessa mynd af Sæfara SH 104 frá Stykkishólmi á dögunum.
Það er Hólmurinn ehf. sem gerir bátinn út en hann kemur úr smiðju Baldurs á Hlíðarenda við Akureyri.
Báturinn var smíðaður árið 1986 og hét Matthildur EA 222 en árið 1991 kaupir Sigurður Sigurðsson á Húsavík bátinn og nefnir Vin ÞH 73.
Árið 2014 er Vinur kominn í eigu Arnars Sigurðssonar sem átti bátinn fram á sumar árið 2020 en þá seldi hann seldi bátinn í Hólminn. Þar fékk hann nafnið Sæfari SH 104.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.