
Sæljón RE 19 kemur hér til hafnar í Keflavík eitt haustið eftir dragnótaróður í Bugtinni.
Báturinn er einn hinna svokölluðu Kínabáta sem smíðaðir voru í Dalian í Kína og komu til landsins á árinu 2001.
Sæljón var smíðað fyrir Sæljón ehf. í Reykjavík og leysti af hólmi 29 brl. eikarbát með sama nafni.
Vorið 2003 kaupir Nesfiskur bátinn og hann fær nafnið Benni Sæm GK 26 sem hann ber enn þann dag í dag.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution