
Jökull ÞH 299 hélt til veiða frá Húsavík í kvöld eftir Sjómannadagsfrí en báturinn stundar grálúðuveiðar í net.
Spáin frekar leiðinleg og kallarnir fengu norðanáttina beint í nefið.
Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 metrar og breiddin 10 metrar.
Hann er útbúinn til línu- og netaveiða og gerður út af GPG Seafood á Húsavík. Heimahöfn Jökuls er á Raufarhöfn.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution