
Þá er Sjómannadagurinn framundan og því upplagt að birta eina gamla mynd af Dalaröstinni í skemmtisiglingu á Skjálfanda árið 2007.
Útgerðarfélagið Flóki ehf. keypti bátinn frá Þorlákshöfn árið 1999 en þar bar hann nafnið Dalaröst ÁR 63.
Báturinn var smíðaður í Noregi 1978 en keyptur til landsins fjórum árum seinna og hét þá Rolant II. Hér á landi fékk hann nafnið Jón Bjarnason SF 3 og eigandinn var Svalan h/f á Hornafirði. 1984 kaupir Glettingur h/f í Þorlákshöfn bátinn og nefnir hann Dalaröst ÁR 63.
Dalaröst ÞH 40 var seld árið 2008 og hélt báturinn nafninu um tíma en varð GK 150.
Í upphafi árs 2009 fékk hann nafnið Hans Jakob GK 150 og haustið 2010 Tungufell BA 326.
Báturinn var dreginn til Belgíu í brotajárn árið 2015 en þá hafði hann legið um tíma.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.