
Hér liggja saman við bryggju á Akureyri síðustu tveir eikarbátarnir sem Skipasmíðastöð KEA smíðaði.
Haförn EA 155 er sá sem liggur við bryggjuna og utan á honum Naustavík EA 151 sem upphaflega hét Sólrún EA 251.
Báðir bátarnir smíðaðir fyrir útgerðir við Eyjafjörð. Haförn, sem var 27 brl. að stærð, árið 1973 fyrir Jóhann Sigurbjörnsson í Hrísey og Sólrún, sem var 28 brl. að stærð, árið 1975 fyrir Sólrúnu hf. á Árskógssandi.
Haförn átti Jóhann til ársins 1988 er hann var seldur til Tálknafjarðar. Þar hélt hann nafni sínu en varð BA 327.
Árið 1993 var Haförn seldur í Stykkishólm þar sem hann fékk nafnið Dalaröst SH 107. Þann 7. mars 1993 lenti Dalaröstin á skeri skammt norðan við Stykkishólm og eyðilagðist þar.
Í janúar 1987 var Sólrún seld Naustavík s/f á Árskógssandi og fær þá nafnið Naustavík EA 151. Sumarið 1999 keypti Fiskkaup h/f bátinn og nefndi Ásrúnu RE 277. Ári síðar kaupir Ingimundur h/f Ásrúnu og nefnir Helgu RE 47. Sumarið 2002 fékk báturinn nafnið Breiðdælingur SU 62 og var eigandi Fossabrún ehf. á Breiðdalsvík.
Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn haustið 2002 og sumarið 2003 hóf hann siglingar með ferðamenn undir nafninu Bjössi Sör.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution