Tjúlla GK 29 á landleið

2595. Tjúlla GK 29 ex Grunnvíkingur HF 163. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Tjúlla GK 29 er hér á leið til hafnar í Sandgerði eftir róður í fyrradag.

Upphaflega hét báturinn Grunnvíkingur HF 163 og var smíðaður hjá Sólplasti í Sandgerði árið 2003. Heimahöfn Hafnarfjörður.

Hann hefur heiti Tjúlla GK 29 frá árinu 2015, fyrst með heimahöfn í Garði en frá árinu 2018 í Sandgerði.

Tjúlla GK 29, sem er 10,66 BT að stærð, er gerð út af Gotta ehf.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd