Hafdalur GK 69

7344. Hafdalur GK 69 ex Von NS 29. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Hér koma myndir sem sýna Hafdal GK 69 á skaki suður af Hópsnesi í vikunni.

Hafdalur hét upphaflega Hjalti HF 32 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1992.

Frá árinu 1995 hefur báturinn borið nöfnin Heiða Ósk NS 148 með heimahöfn á Vopnafirði. Heiða SH 106, með heimahöfn í Stykkishólmi. Kári SH 78, Kári SH-780, heimahöfn Stykkishólmur.

Svanur Þór EA 113 með heimahöfn á Dalvík, Helgi Hrafn ÓF 67, heimahöfn á Ólafsfirði. Von ÓF 69, heimahöfn á Ólafsfirð og Von NS 29 með heimahöfn á Bakkafirði.

Frá árinu 2022 hefur báturinn borið nafnið Hafdalur GK 69 með heimahöfn í Vogum á Vatnsleysuströnd.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd