Stapafell SH 26

1434. Stapafell SH 26 ex Leifur EA 888. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025.

Dragnótabáturinn Stapafell SH 26 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum um helgina en það er Bárður SH 81 ehf. sem gerir hann út.

Útgerðin keypti bátinn í fyrra og er hann með heimahöfn á Arnarstapa.

Um bátinn, sem lengi hét Þorleifur EA 88, er það m.a að segja að hann hét upphaflega Hildur Stefánsdóttir ÞH 204 og var smíðaður á Seyðisfirði árið 1975.

Önnur nöfn sem báturinn hefur borið eru Tryggvi Jónsson EA 26, Kristín ÁR 101, Ásdís ST 37, Hringur GK 18 og Leifur EA 888.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd