
Hér liggur rannsóknarskipið Poseidon EA 303 við bryggju á Akureyri í aprílmánuði árið 2011.
Harðbakur EA 303 var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureyringa h/f.
Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til heimahafnar á Akureyri þann 26. mars árið 1975.
Harðbakur var EA 303 til ársins 1999 er það breyttist í EA 3 og árið 2008 var hann seldur og breytt í rannsóknarskip sem fékk nafnið Poseidon.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution