
Línubáturinn Sólrún EA 151 kemur hér til hafnar á Húsavík í gær en Það er GPG Seafood sem gerir bátinn út.
Upphaflega hét báturinn, sem er 25 BT að stærð, Sæunn Sæmunds ÁR 60 frá Þorlákshöfn.
Sólrún var smíðuð hjá Seiglu á Akureyri árið 2007 og hefur gengið í gegnum miklar breytingar frá því hann var keyptur norður.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution