Bergur og Vestmannaey lönduðu fullfermi í Grindavík í gær

2964. Bergur VE 44 ex Bergey VE 144 – 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Vestmannaeyjaskipin Bergur VE 44 og Vestmannaey VE 144 lönduðu báðir fullfermi í Grindavík í gær.

Byrjað var að landa úr Bergi klukkan tólf á hádegi og svo Vestmannaey afgreidd í kjölfarið.

Megnið af aflanum fór til vinnslu hjá Vísi í Grindavík. Héldu skipin skipin út aftur strax að löndun lokinni.

Jón Steinar tók meðfylgjandi myndir þegar verið var að landa úr þeim.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd