Halldór afi KE 222

1546. Halldór afi GK 222 ex Halldór afi GK 222. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Á þessum myndum sem Jón Steinar tók í gær má sjá Halldór afa KE 222 á veiðislóðinni út af Straumsvík þar sem hann var við netaveiðar.

Báturinn var smíðaður árið 1979 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. á Skagaströnd.

Halldór afi mælist í dag rúmlega 23 brl. að stærð en hann var lengdur árið 1996.

Báturinn hét upphaflega Einar Hólm SU 50 og var með heimahöfn á Eskifirði. Árið 1983 fékk hann nafnið Gestný Þórðardóttir BA 91 með heimahöfn á Barðaströnd. 

Árin 1985 til 1995 hét báturinn Guðbjörn ÁR 34 og heimahöfnin Þorlákshöfn. Frá árinu 1995 hét hann Særós RE 207.

Það var svo árið 2005 sem báturinn var seldur til Vestmannaeyja þar sem hann fékk nafnið Glófaxi ll VE 301 sem breyttist sama ár í Frú Magnhildur VE 22. 

Árið 2012 kom báturinn á Reykjanesið þar sem hann hefur verið síðan. Fyrst hét hann Frú Matthildur GK 222 en frá árinu 2016 hefur báturinn borið það nafn sem hann ber í dag en árið 2023 varð hann KE 222.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd