
Ágústa Haraldsdótir VE 108 hét upphaflega Gnýfari SH 8 og var smíðaður árið 1960 í Dráttarbrautinni h/f í Neskaupstað fyrir Gnýfara h/f í Grundarfirði.
Báturinn var 65 brl. að stærð, upphaflega búinn 400 hestafla MWM aðalvél en árið 1973 var sett í hann 370 hestafla Cummins. Árið 1974 var hann endurmældur og mældist þá 64 brl. að stærð. Árið 1985 vék Cumminsinn fyrir nýrri 496 hestafla vél sömu tegundar
Haraldur hf. á Dalvík keypti bátinn árið 1979 og fékk hann nafnið haraldur EA 62.
Haraldur EA 62 var seldur til Vestmannaeyja árið 1991 þar sem hann fékk nafnið Ágústa Haraldsdóttir VE 108. Útgerð Haraldur Traustason.
Árið 1995 báturinn nafnið Narfi VE 105 gerður út af samnefndu félagi fimm árum síðar fékk hann nafnið Þorri VE 50. Útgerð Útgerðarfélagið Þorri ehf. í Vestmannaeyjum.
Frá árinu 2000 hét hann Þorri VE 50, Vestmannaeyjum og var skráður eigandi bátsins frá þeim tíma Útgerðarfélagið Þorri ehf. Vestmannaeyjum.
Á vefnum aba.is segir að frá og með árinu 2005 voru eftirtaldir eigendur skráðir eigendur bátsins: Vör ehf., Jaspís ehf., Álftanes ehf. og Orka ehf.
Frá árinu 2011 hét báturinn Gullfaxi ÍS 594 frá Svalvogum á Vestfjörðum og var Seaflower ehf. skráður eigandi.
Skráður eigandi frá 2014 voru Faxaflóahafnir sf. Reykjavík
Báturinn hét Gullfaxi ÍS-594 frá Svalvogum þegar hann var felldur af skipaskrá 28. maí 2014 með eftirfarandi ummælum Siglingastofnunar.
„Tekinn úr rekstri. Fer í niðurrif.“ (heimild aba.is)
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution