
Jón Steinar tók þessar myndir af línubátnum Vésteini GK 88 þar sem hann var að draga línuna rétt utan við Grindavík í dag.
Að sögn ljósmyndarans var mokfiskirí hjá köllunum og þurftu þeir að fara inn til Grindavíkur um hádegisbilið þar sem landað var um 12 tonnum.
Síðan var farið út aftur og klárað að draga línuna sem gaf rúm 8 tonn þannig að afli dagsins var um 20 tonn.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution