
Oddverji SI 76, sem hér sést koma til hafnar á Siglufirði sumarið 202, hét upphaflega Portland VE 97.
Hann er af gerðinni Gáski 1100 d, smíðaður árið 2001 hjá Bátasmiðjunni Mótun.
Potland var seldur frá Vestmanneyjum til Grundarfjarðar árið 2005 þar sem hann fékk nafnið Láki SH 55.
Frá árinu 2007 hefur hann borið nöfnin Gunnar Leós ÍS 112 me heimahöfn í Bolungarvík, Gunnar SK 112 með heimahöfn á Sauðárkróki, Gunnar SI 112 með heimahöfn á Siglufirði.
Frá árinu 2015 hefur hann borið nafnið Oddverji SI 76, Oddverji ÓF 76 og frá árinu 2019 aftur Oddverji SI 76.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.