
Náttfari kemur hér úr fyrstu hvalaskoðunarferð ársins frá Húsavík sl. mánudag en það er Norðursigling sem gerir bátinn út.
Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4.
Norðursigling keypti bátinn árið 1998 en þá hafði hann legið um árabil í reiðuleysi austur á fjörðum.
Náttfari, sem er 60 brl. að stærð, hóf síðan hvalaskoðunarsiglingar sumarið 1999.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution