Maggý VE 108

1855. Maggý VE 108 ex Ósk KE 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Dragnótabáturinn Maggý VE 108 kemur hér til hafnar í Sandgerði eftir róður sl. vor.

Maggý, sem gerð er út af Narfa ehf. í Vestmannaeyjum, var smíðuð í Póllandi 1988 og hét upphaflega Skálavík SH 208 frá Ólafsvík. 

Báturinn, sem er 118 BT að stærð, hét síðar Sigurbára VE 249, Sigurbára II VE 248, Sæfari ÁR 117, Hafnarberg RE 404 og Ósk KE 5.

Hér má skoða myndir af bátnum undir flest öllum nöfnunum.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd