Aðalbjörgin við veiðar á Hafnarleirnum

1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Jón Steinar tók þessar drónamyndir í gær af dragnótabátnum Aðalbjörgu RE 5 þar sem hún var að veiðum á Hafnarleirnum.

Aðalbjörg RE 5 var smíðuð hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1987 og lengd árið 1995. Báturinn er eftir það 21,99 metrar að lengd og mælist 59 brl./68 BT að stærð.

Eins og kom fram á síðunni um miðjan janúar sl. þá keypti Fiskkaup útgerðarfélagið Aðalbjörgu RE ásamt samnefndu skipi og aflaheimildum.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd