
Guðný ÍS 266 er hér í slipp á Akureyri um árið en upphaflega hét báturinn Sunnutindur SU 59 frá Djúpavogi.
Sunnutindur SU 59 var smíðaður hjá Gebr. Gehusenstedt K.G. í Bardenfleth í A-Þýskalandi fyrir Búlandstind hf. og kom fyrst til heimahafnar þann 8 febrúar 1957.
Á miða frá Hauki Sigtryggi segir:
0483….Sunnutindur SU 59.. TF-EG. Skipasmíðastöð: Gebr. Gehusensted K.G. Bardenfl. 1957. 1963 = Brúttó: 75. U-þilfari: 62. Nettó: 23. Lengd: 21,03. Breidd: 5,63. Dýpt: 2,45. Nýskráður 18.02.1957. Mótor 1957 MWM 280 hö. Ný vél 1981 Caterpillar 317 kw. 431 hö. Sunnutindur SU 59. Útg: Búlandstindur h.f. Djúpavogi. (1957 – 1960).
Guðný ÍS 266. Útg: Búðanes h.f. Ísafirði. (1960 – 1992). Guðný ÍS 266. Útg: Magnús Snorrason. Bolungarvík. (1992 – 1994). Guðný ÍS 266. Útg: Dýri ehf. Bolungarvík. (1994 – 2001).
Gústi í Papey SF 188. Útg: Gústi í Papey ehf. Höfn Hornafirði. (2001 – 2004). Sökk 04.06.2004. Afskráður 23.08.2004.
Eins og kemur fram sökk báturinn árið 2004 eftir að mikill leki kom að honum út af Langanesi. Áhöfninni, þrem mönnum, var bjargað um borð í togarann Árbak EA 5 frá Akureyri.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.