
Húnaröst ÁR 150 kemur hér að bryggju, eða utan á annan bát, á Akureyri um árið.
Húnaröstin hét upphaflega Gissur Hvíti SF 1 og var smíðuð í Sönderborg í Danmörku árið 1968.
Í 1. tbl. Ægis árið 1995 mátti m.a lesa þetta:
Húnaröstin var byggð hjá Sondeborg Skibsværft í Danmörku, nýsmíði númer 56, og kom til landsins í júnímánuði árið 1968. í júní 1968 til janúar 1973 hét hún Gissur hvíti SF 1 og eigendur voru Óskar Valdimarsson o.fl. Hornafirði.
í febrúar 1973 til september 1973 hét hún enn sama nafni en var þá í eigu Stáls hf. á Seyðisfirði en í október 1973 var hún seld til Neskaupstaðar og hét þá Víðir NK 75 og var í eigu Bylgjunnar hf. á Neskaupstað. Þar var hún þar til í maí 1975 þegar hún verður Húnaröst ÁR 150 í eigu samnefnds fyrirtækis í Þorlákshöfn.
Frá apríl 1990 hefur hún síðan heitið Húnaröst RE 550, skipaskrárnúmer 1070, og verið skráð í Reykjavík. Fyrsta breytingin var gerð árið 1977 þegar byggt var yfir skipið og það lengt úr 39,15 metrum í 44,76 metra.
í júní 1989 var aftur lenging á dagskrá og nú tognaði á Húnaröstinni í 50,85 metra. Upphaflega var aðalvél skipsins frá MWM 825 hestöfl en í september 1980 var skipt um aðalvél og núverandi vél er frá Bergen Diesel, 1420 hestöfl.
Húnaröstin fékk síðar einkennisstafina SF 550 en árið 2004 var bátnum siglt til niðurrifs í Danmörku.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.