
Arnar KE 260 kemur hér til hafnar í Keflavík um árið en það var hans heimahöfn.
Arnar var smíðaður í Risør í Noregi árið 1987 en keyptur til Íslands ári síðar.
Arnar var lengdur í tvígang, fyrst á Seyðisfirði og síðar á Akranesi og mælist nú 60 brl. að stærð.
Síðar var hann KE 160 um tíma en fékk svo nöfnin Hanna Kristín BA 244, HF 244 og SH 242. María Pétursdóttir VE 14, Guðrún Jakobsdóttir EA 144 og loks Aldan ÍS 47 sem hún ber í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.