
Kolbeinsey EA 252 úr Grímsey kemur hér til hafnar á Húsavík vorið 2014.
Báturinn, sem var í eigu Hafborgar ehf. í Grímsey, hét upphaflega Jón Páll BA 133 og var smíðaður í Bátagerðinni Samtak árið 2006.
Árið 2008 fékk báturinn nafnið Landey SH 31 og hét svo til ársins 2012 með heimahöfn í Stykkishólmi.
Þá fór báturinn ti Grímseyjar þar sem hann fékk nafnið Kolbeinsey EA 252.
Frá árinu 2018 til 2021 hét báturinn Alli GK 37 en hefur upp frá því borið nafnið Addi Afi GK 37 með heimahöfn í Sandgerði.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution