Ársæll SH 88

1191. Ársæll SH 88 ex Kópur ÁR 9. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Ársæll SH 88 hét hét upphaflega Skálafell ÁR 20 á íslenskri skipaskrá en báturinn var keyptur til landsins frá Noregi árið 1971, þá þriggja ára.

Hann átti eftir að bera nöfnin Hegri KE 107, Heimir KE 77 og Kópur ÁR 9 áður en hann varð Ársæll SH 88.

Það var haustið 1987 sem Sólborg ehf. í Stykkishólmi keypti Kóp ÁR 9 frá Stokkseyri og nefndi Ársæl SH 88.

Frá Stykkishólmi var báturinn gerður út til ársins 1996 en var þá seldur og fékk hann nafnið Grótta HF 35 og síðar Grótta RE 26.

Árið 2002 fær báturinn nafnið Leifur Halldórsson SH 217 og tveimum árum síðar er hann orðinn Draupnir ÁR 21 sem var hans síðasta nafn.

Seldur til Rússlands árið 2007 þar sem hann varð Draupnir M-0421 með heimahöfn í Murmansk. Seldur í brotajárn árið 2011.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd