
Árni Geir KE 74 hét upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði og var smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi árið 1963.
Um bátinn má lesa nánar hér en ef minni ljósmyndarans bregst ekki var myndin tekin haustið 1985.
Í ársbyrjun 1986 kaupa bræðurnir Rúnar og Sigurður Hallgrímssynir í Keflavík bátinn sem síðar fékk nafnið Happasæll KE 94.
Byggt var yfir Happasæl að hluta árið 1986 og árið eftir var lokið við að byggja yfir hann auk þess sem skipt var um brú á bátnum. Sumarið 1992 var báturinn skutlengdur.
Síðasta nafn bátsins var Grímsnes GK 555.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution