
Hér liggur Húsvíkingur ÞH 1 við Norðurgarðinn í Húsavíkurhöfn og var þetta í fyrsta skiptið af örfáum sem hann kom í heimahöfn.
Húsvíkingur hét upphaflega Pétur Jónsson RE 69 og var smíðaður árið 1994 fyrir Pétur Stefánsson skipstjóra og útgerðarmann.
Smíðin fór fram hjá Aukra Industrier A/S í Aukra í Noregi en togarinn er 1924 BT að stærð.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. keypti togarann árið 1997 og gaf honum nafnið Húsvíkingur ÞH 1.
Húsvíkingur ÞH 1 var seldur úr landi árið 1999.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution