Gísli Árni í Krossanesi

1002. Gísli Árni RE 375. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Gísli Árni RE 375 var annálað aflaskip á sínum tíma og hér er hann við bryggju í Krossanesi og bíður löndunar eða þá það er verið að landa úr honum.

Gísli Árni var smíðaður fyrir Sjóla hf. í Reykjavík hjá Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi árið 1966.

Gísli Árni var 355 brl. að stærð búinn 700 hestafla Wichmann aðalvél. Báturinn var endurmældur árið 1970 og mældist þá 296 brl. að stærð.

Hann var lengdur og yfirbyggður árið 1973 og mældist eftir það 336 brl. að stærð. Árið 1977 var skipt um aðalvél og kom 1500 hestafla Wichmann í stað þeirrar sem áður var.

Gísli Árni RE 375 var seldur til Grindavíkur árið 1988 og fékk nafnið Sunnuberg GK 199. Kaupandi Fiskimjöl & lýsi hf. í Grindavík.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd