Steinunn SF 10

2966. Steinunn SF 10 Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2024. Sigurður Davíðsson skipverji á Steinunni SF 10 sendi þesssa mynd í kvöld en Steinunn landaði úr síðsustu veiðferðinni fyrir jólin í morgun. Steinunn landaði í Þorlákshöfn og að löndun lokinni var skipið prýtt með jólaljósum áður en skipverjar héldu til síns heima. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Steinunn SF 10

Hrafn Sveinbjarnarson GK 255

1028. Hrafn Sveinbjarnarsonn GK 255. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 sést hér á mynd Hreiðars Olgeirssonar, sennilega tekin 1983 eða 4. Báturinn var smíðaður árið 1967 fyrir Þorbjörn hf. í skipasmíðastöðinni V.e.b Elbewerft í Boizenburg í Austur Þýskalandi. Kom hann til heimahafnar í Grindavík á Skírdag það ár. Lesa nánar um bátinn hér. Með … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson GK 255

Vatnes KE 30

212. Vatnes KE 30 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson, Vatnes KE 30 er hér við úthafsrækjuveiðar úti fyrir Norðurlandi um árið. Báturinn hét upphaflega Sæþór ÓF 5 og var smíðaður árið 1960 í Risör í Noregi.  Hann var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Ólafsfjarðar h.fá Ólafsfirði en hér má lesa nánar um bátinn. Með því að … Halda áfram að lesa Vatnes KE 30

Fanney SK 83

619. Fanney SK 83 ex Hrafnsey SF 8. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Fanney SK 83 hét upphaflega Jón Jónsson SH 187 frá Ólafsvík og var smíðaður í Skipasmíðastöð KEA á Akureyri árið 1959. Báturinn var smíðaður fyrir Halldór Jónsson útgerðarmann í Ólafsvík, síðar Stakkholt hf., og var hann gerður út þaðan til ársins 1975.  Þá var … Halda áfram að lesa Fanney SK 83

Sigurður Þorleifsson GK 10

1028. Sigurður Þorleifsson GK 10 ex Hrafn Sveinbjarnarson GK 255. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sigurður Þorleifsson GK 10 á toginu, upphaflega Hrafn Sveinbjarnarson GK 255. Í byrjun janúar árið 1990 breytti Þorbjörninn nafni bátsins úr Hrafni Sveinbjarnarsyni GK 255 í Sigurð Þorleifsson GK 10. Seldur til Eskifjarðar árið 1994 þar sem hann fékk nafnið  Sæljón SU … Halda áfram að lesa Sigurður Þorleifsson GK 10