Siggi Villi NK 17

1560. Siggi Villi NK 17 ex Var AK 39. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Siggi Villi NK 17 kemur hér að bryggju í Neskaupstað um árið sem ég held að hafi verið 1989 eða þar um bil.

Báturinn, sem er rúmlega 6 brl. að stærð, var smíðaður árið 1979 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. á Skagaströnd. Hann hét Jökull RE 139 og hét því nafni til ársins 1983.

Síðan þá hefur hann borið tólf nöfn en alls eru skráningar 20. Þ.e.a.s báturinn hefur borið sum nöfnin undir fleiri en einni skráningu.

Báturinn heitir í dag Snarti KÓ 106.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd