
Rauðsey AK 14 frá Akranesi kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið, sennilega haustið 1985.
Rauðsey hét upphaflega Örfirisey RE 14 og var smíðuð í Deest í Hollandi árið 1966. Báturinn var 308 brl. að stærð.
Í lok árs 1972 var Örfirisey seld til Akraness þar sem hún fékk nafnið Rauðsey AK 14.
Rauðsey var endurmæld 1973 og mældist þá 263 brl. að stærð en eftir lengingu í Hollandi árið 1974 mældist hún 298 brl. að stærð.
Báturinn var yfirbyggður árið 1976 og nokkrum árum síðar var komin ný brú. Sleginn út að aftan og bakka lokað.
Rauðsey var seld til Húsavíkur árið 1992 þar sem hún fékk nafnið Björg Jónsdóttir ÞH 321.
Miði sem Haukur Sigtryggur sendi:
1030….Örfirisey RE 14…. TF-PK. IMO: 6704892. Skipasmíðastöð: Scheepswerf Gebr. Van We. Deest. Hollandi 1967. 1970 = Brúttó: 308. U-þilfari: 225. Nettó: 152. Lengd: 35,39. Breidd: 7,62. Dýpt: 3,71. Endurbyggt 1976. Kom nýr til Húsavíkur 09.02.1967. Mótor 1966 Lister 800 hö. Ný vél 1981 Grenaa 662 kw. 900 hö.
Örfirisey RE 14. Útg: Hraðfrystistöðin í Reykjavík h.f. Rey. (1967 – 1972). Örfirisey RE 14. Útg: Haraldur Böðvarsson & Co. h.f. Akranesi.(1972). Rauðsey AK 14.Útg: Haraldur Böðvarsson h.f. Akranesi. (1972 – 1992). Björg Jónsdóttir ÞH 321. Útg: Langanes h.f. Húsavík. (1992 – 1996). Arnþór EA 16. Útg: G. Ben. h.f. Árskógssandi. (1996 – 1997). Arnþór EA 16. Útg: B.G.B. h.f. <Bliki. G.Ben.> Dalvík. (1997 – 1999). Goðatindur SU 57. Höfn: Djúpavogi. Útg: Vísir h.f. Grindavík. (1999 – 2000). Páll Jónsson GK 7. Útg: Vísir h.f. Grindavík. (2000 – 2019). Páll Jónsson GK 357. Útg: Vísir h.f. Grindavík. (2019 – 2020). Klettur GK 39. Útg: Vísir h.f. Grindavík. (2020).
Fór í brotajárn til Belgíu 22.08.2020.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution