Hákon ÞH 250 í Krossanesi

1059. Hákon ÞH 250 ex heimir SU 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hákon ÞH 250 er hér að landa loðnu í Krossanesi um árið en hann hét upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði.

Heimir var smíðaður fyrir Varðarútgerðina hf. í Noregi árið 1967 og mældist 363 brl. að stærð.

Gjögur hf. á Grenivík keypti skipið árið 1975 og gaf því nafnið Hákon ÞH 250.

Hákon var lengdur og yfirbyggður árið 1977 og mældist eftir það 414 brl. að stærð.

Þegar nýr Hákon var smíðaður í Noregi árið 1987 var þessi seldur til Chile.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd