
Byr VE 373 hét upphaflega Gunnar Jónsson VE 500 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972.
Báturinn, sem var 147 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Jón Valgarð Guðjónsson, Vestmannaeyjum og Ísfell hf. Reykjavík.
Árið 1974 var Gunnar Jónsson VE 500 seldur Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. og Hraðfrystistöð Reykjavíkur hf. en í árslok 1976 er fyrra fyrirtækið skráður einn eigandi og báturinn fékk nafnið Suðurey VE 500.
Suðurey var lengd og yfirbyggð í Vestmannaeyjum 1985 og mældist þá 171 brl. að stærð.
Árið 1992 fékk báturinn nafnið Byr VE 373 eftir að Sævar Brynjólfsson og Sveinn Rúnar Valgeirsson keyptu hann.
Árið 1998 kom báturinn úr gagngerum breytingum í Póllandi þar sem hann var m.a útbúinn til túnfiskveiða. Meira um það síðar.
Byr var seldur úr landi árið 2003.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution