
Maggi Jóns tók þessa mynd af Umlungisi í Hafnarfjarðarhöfn í dag.
Þetta er fyrrum Örfirisey RE 4 sem seld var til Suður Afríku í sumar og hefur fengið nafnið Umlungisi með heimahöfn í Cape Town.
Togarinn var smíðaður árið 1988 í Kristiansund í Noregi fyrir Færeyinga og hét Polarborg 1. Grandi keypti skipið 1992 og þá fékk það nafnið Örfirisey RE 4. Það var lengt um 10 metra í Póllandi 1998 um leið og því var breytt í flakafrystitogara.
Umlungisi er 65,47 metra langur, 12,8 metra breiður og mælist 1.842 GT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution