Tjaldur og Rifsnes á Rifi

2158. Tjaldur SH 270 – 2847. Rifsnes SH 44. Ljósmynd Sigurður Friðfinnsson 2024.

Sigurður Friðfinnsson tók þessa myndir í gærmorgun af línuskipunum Tjaldi SH 270 og Rifsnesi SH 44 þar sem þau liggja í blankalogni við bryggju á Rifi.

Um Tjaldinn má lesa hér en Hraðfrystihús Hellisands keypti Rifsnesið til landsins árið 2013. Það hét áður Polarbris og var smíðað árið 1999 í Noregi. Nánar tiltekið í Larsnes Mek. Verkstad A/S.

Rifsnesið er 43 metrar að lengd, breiddin er 9 metrar og það mælist 776 BT að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd