Dröfn BA 62

325. Dröfn BA 62 ex Dröfn KE 6. Ljósmynd Hafþór hreiðarsson.

Dröfn BA 62 hét upphaflega Kvikstur KÓ 13 og var smíðuð í Bátalóni árið 1960.

Báturinn, sem var 11 brl. að stærð, var ári síðar kominn norður á Þórshöfn á Langanesi þar sem hann fékk nafnið Bjargá ÞH 102.

Árið 1973 fékk báturinn nafnið Dröfn EA 235 með heimahöfn á Dalvík. 1976 varð Dröfn KE 6 með heimahöfn í Keflavík. Árið 1978 Dröfn BA 62 með heimahöfn á Patreksfirði, 1990 Dröfn ÍS 78 með heimahöfn á Ísafirði, 1991 Dröfn SH 141 með heimahöfn á Rifi.

Báturinn fvarð aftur ÍS 78 síðar á árinu 1991 og það nafn bar báturinn þegar honum var fargað og hann tekinn af skipaskrá haustið 1992.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd