
Dragnótabáturinn Hafdís SK 4 frá Sauðárkróki kemur hér að landi á Húsavík síðdegis í dag.
Það er FISK Seafood sem gerir bátinn út en hann hét áður Hafborg EA úr Grímsey en Hafdísarnafnið fékk báturinn í nóvember í fyrra.
Hafdís SK 4, sem er tæplega 60 BT að stærð, var smíðuð á Ísafirði 1998 og hét upphaflega Stapavík AK 32.
Síðar lengi vel Hafborg EA 152 og loks EA 242 eftir að ný Hafborg EA 152 kom til landsins í árslok 2018.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution